Ef þú ert í forsvari fyrir félag og ert ekki með prókúru, til dæmis vegna húsfélags og þarft aðgang að Mínum síðum þá er það hægt ef þú getur staðfest tengsl þín í gegnum heimabanka.
Að stofna tengsl við félag
- Farðu inn á vef Signet
- Auðkenndu þig með með rafrænum skilríkjum.
- Skilaboð birtast á skjánum og skal velja Áfram að lestri loknum. Sláðu inn númerið sem birtist á símanum þínum í reitinn fyrir auðkennisnúmer á Signet vefnum.
- Þá ættir þú að vera komin inn á vef Signets. Veldu hnappinn „Staðfesta tengsl við lögaðila“.
- Sláðu inn kennitölu félagsins sem þú vilt staðfesta tengsl við og veldu Panta.
- Skráðu þig inn í heimabanka félagsins
- Farðu í rafræn skjöl, opnaðu skjalið frá Signet login og smelltu á hnappinn Hefja ferli til að sanna tengslin.
- Auðkenndu þig með rafrænum skilríkjum inn á Signet síðuna sem þá opnast.
- Staðfestu að upplýsingarnar séu réttar.
- Farðu inn á viðmót Signet
- Auðkenndu þig inn á vefinn með rafrænum skilríkjum eða auðkennisappi..
- Ef þú valdir rafræn skilríki: Skilaboð birtast á skjánum og skal velja Áfram að lestri loknum. Sláðu inn númerið sem birtist á símanum þínum í reitinn fyrir auðkennisnúmer á Signet vefnum.
- Eftir innskráningu birtist form sem fylla þarf út til að veita aðila aðgang að síðunum.
- Félag. Í fellivalmyndinni birtist listi yfir þau félög sem prókúruhafi hefur aðgang að. Veldu það félag sem á að veita aðgang að.
- Umboðshafi. Settu inn kennitöluna þína.
- Fyrir hönd. Kerfið fyllir sjálkrafa út í þennan reit.
- Gildir til. Tilgreinið hversu lengi aðgangurinn má vera virkur, þó að hámarki tvö ár.
- Þegar umboðið hefur verið vistað birtist staðfesting þess efnis.
Að skrá umboð
Nú þegar búið er að staðfesta tengslin þarftu að veita þér umboð til að hafa aðgang að vefnum. Fylgdu leiðbeiningunum hér að neðan.
Að þessu loknu getur þú skráð þig inn á Mínar síður fyrir hönd félagsins.