Get ég frestað greiðslu?

Já, þú getur frestað aðgerðum á máli í 7 daga á mínum síðum, háð því að það sé ekki komið á seinni stig innheimtu, það er löginnheimtu eða kröfuvakt. Hægt er að fresta máli í eitt skipti.

1) Inni á mínum síðum skaltu velja málið sem á að fresta. Efst inni á upplýsingasíðu fyrir málið finnur þú svo aðgerðahnapp til að fresta málinu og þá opnast lítill gluggi til að staðfesta beiðnina.

2) Við viljum benda þér á að oft getur verið betra að gera samkomulag um að skipta greiðslunum. Hægt er að ganga frá greiðslusamkomulagi inn á Mínum síðum með því að velja Semja hnappinn fyrir tiltekið mál.

Skjámynd af Mínum síðum