Vegna ástandsins er búið að fresta öllum námskeiðum í Innheimtuskóla Motus fram á haustið. Innheimtuskólinn býður upp á "rafræna" kennslu. Vinsamlegast sendið tölvupóst á elsa@motus.is ef þið viljið fá rafræna kennslu eða hafið samband í síma 440 7777 til að fá frekari upplýsingar.
Markmið með Innheimtuskóla Motus er að bjóða viðskiptavinum upp á vettvang til að fræðast á aðgengilegan hátt um þætti sem snúa að viðskiptakröfum og meðferð þeirra.
Í boði er fjölbreytt námsefni sem veitir betri innsýn í meðferð viðskiptakrafna, viðskiptavefinn, ferlið við löginnheimtu og margt fleira.
Með Innheimtuskólanum er þörfum viðskiptavina Motus sinnt enn betur, tryggt að samræmd vinnubrögð séu ávallt notuð og færni og þekking þeirra sem námskeiðin sækja aukin. Með virkri fræðslu sem tekur mið af þörfum viðskiptavina og hlutverki fyrirtækisins er stuðlað að því að starfsfólk samstarfsfyrirtækja Motus öðlist betri þekkingu og tækifæri til að nýta hæfileika sína og samstarfið til fulls.
Á þessari síðu eru notaðar vafrakökur í þeim tilgangi að bæta upplifun notenda og halda utan um og mæla frammistöðu vefsins og umferð um hann, svo sem tölfræðilegar upplýsingar um fjölda notenda og hegðun þeirra á honum.
Flestir vafrar heimila notkun á vefkökum sjálfkrafa, en notendur geta sjálfir afvirkjað þann möguleika.