Það er hægt að vera í samtímauppgjöri bæði í frum- og milliinnheimtu. Það þýðir að þegar greiðsluseðill er greiddur, greiðist höfuðstóll og dráttarvextir til kröfuhafa en innheimtukostnaður til Motus.
Flest hugbúnaðarfyrirtækin hafa sérsniðið lausn í algengustu útgáfur viðskiptahugbúnaðarkerfa sem gerir notendum mögulegt að senda kröfuskrár og lesa greiðsluskrár frá Motus beint inn í bókhaldskerfi fyrirtækisins. Mikill tími og vinna sparast með þessu, auk þess sem komið er í veg fyrir villur sem geta átt sér stað við innslátt upplýsinga.
Með uppsetningu á slíkri lausn flæða upplýsingar einfaldlega milli kerfa. Samþætting eykur möguleika þeirra viðskiptalausna sem þegar eru í notkun með því að opna nýjar leiðir til sjálfvirkrar skráningar. Slík sjálfvirkni hefur þannig í för með sér aukið hagræði.
Svarið ræðst af því um hversu háa upphæð er deilt, hvort deilan snýst um persónur eða hluti, í hvaða ásigkomulagi varan/þjónustan er afhent o.s.frv. Góð venja er að svara andmælum á skynsaman hátt og rannsaka á hverju þau eru byggð. Auk þess skal gæta þess að hæfir einstaklingar sjái um að meta andmælin og svara þeim.
Fyrsta reglan er sú að seljandi og kaupandi gera með sér samkomulag um greiðslufrest að öðrum kosti á að greiða reikninginn eins fljótt og mögulegt er. Báðir aðilar þurfa þó að túlka greiðslufrestinn á sama hátt. Þetta er hægt að setja á reikning sem “Greiðist í síðasta lagi DD-MM-ÁÁ” eða tilgreina ákveðinn gjalddaga og ákveðinn eindaga. Kaupandi sem greiðir fyrir eindaga telst í skilum en greiði kaupandi eftir eindaga, á seljandi rétt á dráttarvöxtum frá gjalddaga.
Á Íslandi er almennur afskriftartími 4 ár frá útgáfudegi reiknings. Kröfur skv. skuldabréfum, dómi eða opinberri sátt fyrnast þó á 10 árum. Hafa ber í huga að ef kröfuhafi heldur ekki fram kröfu sinni með málssókn eða skuldari viðurkennir ekki kröfuna innan tiltekins frests, telst krafan fallin niður, þ.e. fyrnd. Fyrningarfrestur byrjar að líða frá gjalddaga kröfu. Slit fyrningarfrests eru við viðurkenningu skuldara á kröfunni eða við málssókn kröfuhafa og þá byrjar nýr fyrningarfrestur að líða.
Í þeim tilvikum sem kröfuhafi er VSK-skyldur ber honum að greiða VSK af innheimtuþóknun sem lögð er á greiðanda. Í uppgjöri er VSK skuldfærður á kröfuhafa og Motus gerir hann upp við Ríkissjóð. Kröfuhafi nýtir sér svo þennan VSK sem innskatt í rekstri.
Í boði eru námskeið hjá Innheimtuskóla Motus þar sem farið er ítarlega í uppgjör okkar.
Motus fékk undanþágu frá því að draga fjármagnstekjuskatt af vöxtum. Ástæðan er sú að viðskiptavinir Motus eru að mestu leyti fyrirtæki en ekki einstaklingar. Vaxtatekjur greiðast að fullu til kröfuhafa í uppgjörum Motus og því ekki um að ræða neinn fjármagnstekjuskatt.
Ríkissjóður leggur ekki fjármagnstekjuskatt á fyrirtæki. Þrátt fyrir það er bönkum skylt að draga frá fjármagnstekjuskatt af öllum vaxtatekjum og gera upp við Ríkissjóð. Fjármagnstekjuskattur, þar sem hann er dreginn frá, færist á eignalykil í efnahag sem heitir “fjármagnstekjuskattur”. Stöðuna á þessum lykli færir endurskoðandi á framtal félagsins í uppgjöri ársins, sem síðan er dreginn frá skattskuld við álagningu, eða verður endurgreiddur sé félag ekki í skuld við álagningu. Motus er undanþegið frádrætti á fjármagnstekjuskatti og þess vegna er ekki um neinn slíkan að ræða í uppgjörum frá Motus.
Í raun er hægt að senda allar gjaldfallnar kröfur beint í Lögheimtuna. Þegar tekið er upp heilsteypt innheimtuferli mælir Motus hinsvegar eindregið með því að kröfur séu ekki sendar í löginnheimtu fyrr en greiðandi hefur fengið viðeigandi tilkynningar um vanskil sín og gefinn kostur á að greiða úr sínum málum. Viðeigandi undanfari fyrir löginnheimtu getur t.d. verið frum- og milliinnheimtuferli Motus.
Löginnheimta getur verið viðeigandi kostur í eftirfarandi tilfellum:
Greiðandi getur á hvaða stigi löginnheimtu sem er greitt kröfu og þannig haft áhrif á framgang hennar. Greiðandi getur líka mætt við þingfestingu máls og óskað eftir fresti og er hann almennt veittur í þeim tilfellum. Sýslumaður gerir fjarnám ef greiðandi á eign/eignir. Ef greiðandi á ekki eign þá er gert árangurslaust fjarnám. Í dag er heimilt að ljúka árangurslausu fjarnámi ef ekki er mætt af hálfu gerðarþola og gerðarbeiðandi veit ekki um eignir.
Greiðandi getur mætt við þingfestingu máls og óskað eftir fresti og er hann almennt veittur í þeim tilfellum.
Ef greiðandi stendur ekki við réttarsátt er hún skráð á vanskilaskrá Creditinfo. Réttarsáttin er svo send í aðför til sýslumanns og fer í gegnum það ferli eins og árituð stefna eða dómur.
Fyrstu fyrirtöku er ekki hægt að fresta og fer hún fram á skrifstofu sýslumanns. Við fyrirtöku er ákveðinn tími fyrir byrjun uppboðs.
Ef vitað er um eign í eigu greiðanda er gert í henni fjárnám. Ef ekki er vitað um eign er sýslumanni heimilt að ljúka fjárnámi án árangurs enda hafi gerðarþoli sannanlega verið boðaður til sýslumanns.
Ef stefndi á skráð lögheimili, fasta búsetu eða dvalarstað í þeirri þinghá sem mál verður þingfest er stefnufrestur þrír dagar, þ.e. stefna þarf að hafa borist greiðanda (stefnda) í hendur þremur dögum fyrir áætlaðan þingfestingardag af stefnuvotti eða póstmanni. Ef stefndi á skráð lögheimili, fasta búsetu eða dvalarstað á Íslandi en utan þinghár þar sem mál verður þingfest er stefnufrestur ein vika. Ef stefndi á heimili eða dvalarstað erlendis eða heimilisfang hans er óþekkt er stefnufresturinn einn mánuður.
Það fer mjög mikið eftir því hversu mikið álag er á starfsmönnum viðkomandi sýslumannsembættis. Í venjulegu árferði er algengt að það taki um tvo mánuði, en ef mikið álag er til staðar getur það teygst upp í hálft ár.
Það er misjafnt og fer nokkuð eftir umfangi máls, álagi á dómara og aðstoðarmenn og því hvort tekið sé til varna í málinu. Það er nánast ómögulegt að setja nákvæma tímasetningu á það og er allt frá fjórum vikum eðlilegt.
Framhaldsuppboð fer fram á eigninni sem selja á og er ekki hægt að fresta því. Aðgerðin er auglýst í dagblöðum. Kröfulýsing í söluandvirði er lögð fram og er eignin seld hæstbjóðanda.
Fyrsta fyrirtaka fer fram á skrifstofu sýslumanns og henni er ekki hægt að fresta. Fyrsta fyrirtaka er auglýst í Lögbirtingarblaðinu og skal auglýsing birt a.m.k. fjórum vikum áður en beiðni er tekin fyrir. Í fyrstu fyrirtöku er málið í rauninni skráð í nauðungarsöluferlið hjá sýslumanni.
Við erum bundin lögum þegar kemur að gerð eignakannana. Slíka athugun má ekki gera nema það liggi fyrir aðfararhæf krafa og athugunina má eingöngu gera af lögmanni.
Hægt er að óska eftir gjaldþroti aðila sé til staðar aðfararhæf krafa og átt hefur sér stað árangurslaust fjárnám. Ekki er nauðsynlegt að árangurslausa fjárnámið hafi verið vegna sömu kröfu og krafist er gjaldþrots vegna. Gjaldþrotabeiðnina þarf að senda í héraðsdóm og þarf hún að vera móttekin innan við þrem mánuðum eftir að árangurslausa fjárnámið er gert, þ.e. móttökustimpill þarf að vera dagsettur innan við þremur mánuðum eftir að árangurslaust fjárnám er gert.
Hægt er að gera fjárnám í fasteignum, ökutækjum, tækjum og lager og öðrum verðmætum sem talin eru standa undir skuldinni. Vissar eignir eru undanþegnar fjárnámi og eru þær skilgreindar í lögum sem lausafjármunir sem nauðsynlegir eru til að halda látlaust heimili, munir sem hafa minjagildi (ef verðmæti þeirra er ekki slíkt að talið sé ósanngjarnt gagnvart þeim sem gerir fjárnámið), munir sem eru nauðsynlegir vegna heilsubrests eða örorku, námsgögn sem eru nauðsynleg vegna skólagöngu og munir sem nýttir eru til atvinnu að samanlögðu verðmæti allt að 50.000 kr.
Nei, ekki þarf að fara með allar kröfur fyrir dóm áður en þær eru sendar í fjárnám. Skuldabréf sem skýrlega kveða á um aðför án undangengins dóms eða sáttar eru t.d. aðfararhæf án fyrirtöku fyrir dómi. Víxlar og tékkar eru einnig undanþegnir dómsúrskurði ásamt sáttum og nauðasamningum. Ef aðfararheimildin er ekki árituð stefna, dómur eða dómsátt verður að birta sérstaka greiðsluáskorun fyrir greiðanda áður en hægt er að krefjast aðfarar.
Greiðanda er stefnt fyrir dóm með birtingu stefnu. Honum er það í raun í sjálfsvald sett hvort hann mætir eða ekki. Ef greiðandi mætir og fer fram á frest til að taka til varna þá er honum almennt veittur hann. Ef greiðandi mætir ekki þá er stefnan árituð af dómara. Það er því ekki nauðsynlegt fyrir framgang málsins að greiðandi mæti fyrir héraðsdóm.
Kröfueigendur þurfa að senda Motus afrit af reikningum og þá sér fulltrúi í millilandainnheimtu um afgreiðslu málsins fyrir hönd kröfueiganda. Motus kemur kröfunum þínum í innheimtu hjá Intrum í viðkomandi landi og hefur samband um leið og greiðandi bregst við innheimtunni. Reglulega eru sendar upplýsingar um stöðu mála. Motus getur einnig annast flutning krafna yfir í löginnheimtu ef með þarf.
Grundvöllur afskriftar kröfu er gjaldþrot, árangurslaust fjárnám, andlát og fyrning. Ef um er að ræða mjög lágar kröfur er nóg að sýnt hafi verið fram á að tilraun hafi verið gerð til að innheimta án árangurs.
Skráning í vanskilaskrá Creditinfo fer fram ef skilyrði fyrir skráningu eru uppfyllt. Til að skrá vanskil í vanskilaskrá þarf að liggja fyrir með sannanlegum hætti að skuldari sé í vanskilum. Tegundir skráðra upplýsinga eru; auglýst uppboð, byrjun og framhald, áritaðar stefnur og dómar, árangurslaus fjárnám, gjaldþrotaúrskurðir, innkallanir, skiptalok og vanskilagögn (réttarsáttir, greiðsluáskoranir með birtingarvottorðum, skuldabréf o.þ.h.). Sé undirskrift skuldara fyrir hendi skráir Motus skuldara í vanskilaskrá sé þess óskað. Annarra gagna aflar Creditinfo frá sýslumannsembættum og héraðsdómstólum og einnig eru gögn unnin upp úr Lögbirtingarblaðinu.
Greiðandi getur ekki látið taka sig af vanskilaskrá Creditinfo nema hann greiði kröfuna sem um ræðir.
Á þessari síðu eru notaðar vafrakökur í þeim tilgangi að bæta upplifun notenda og halda utan um og mæla frammistöðu vefsins og umferð um hann, svo sem tölfræðilegar upplýsingar um fjölda notenda og hegðun þeirra á honum.
Flestir vafrar heimila notkun á vefkökum sjálfkrafa, en notendur geta sjálfir afvirkjað þann möguleika.