Ábyrgðaraðili: Rekstrarstjóri er ábyrgðaraðili vöktunarinnar. Hafir þú spurningar varðandi vöktunina skulu þær berast á netfangið motus@motus.is.
Persónuverndarfulltrúi: Sigríður Laufey Jónsdóttir, personuvernd@motus.is.
Tilgangur vöktunarinnar: Í öryggis- og eignarvörsluskyni.
Heimild til vinnslu: Vöktun fer fram til að gæta lögmætra hagsmuna Motus af öryggis- og eignarvörslu.
Tegundir persónuupplýsinga: Unnið er með myndefni sem verður til við vöktunina þar sem unnt er að sjá einstaklinga sem farið hafa um hið vaktaða svæði og athafnir þeirra.
Viðtakendur: Það myndefni sem verður til við vöktunina er aðeins skoðað af öryggis- og gæðaráði ef rökstuddur grunur er um að brotið sé gegn fyrirmælum, gildandi lögum og reglum. Þó getur myndefni með upplýsingum um slys eða refsiverðan verknað jafnframt verið afhent lögreglu.
Varðveislutími myndefnis: Myndefni er varðveitt í 30 daga og eyðist sjálfkrafa eftir þann tíma. Þó geta upptökur verið varðveittar lengur sé það nauðsynlegt til að krafa verði afmörkuð, sett fram eða varin vegna dómsmáls eða annarra slíkra laganauðsynja. Ef myndefni er afhent lögreglu er öðrum eintökum af efninu eytt. Sjá að öðru leyti 2. tölul. 2. mgr. 5. gr. og 11. gr. reglna nr. 50/2023 um rafræna vöktun.
Réttindi einstaklinga: Einstaklingar hafa rétt til þess að skoða myndefni þar sem þeir sjást. Þá geta einstaklingar jafnframt átt rétt á því að fá afrit af slíku myndefni að því gefnu að það skerði ekki réttindi og frelsi annarra. Að öðru leyti fer um réttindi einstaklinga samkvæmt III. kafla laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, sbr. nánar ákvæði í III. kafla reglugerðar (ESB) nr. 2016/679.
Réttur til að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd: Þeir sem sæta rafrænni vöktun eiga rétt á að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd telji þeir að vinnsla persónuupplýsinga þeirra samræmist ekki ákvæðum laga um persónuvernd.