Viðskiptavinir Motus og Lögheimtunnar hafa aðgang að upplýsingum um innheimtumál þeirra á þjónustuvefnum. Ef þú ert ekki með aðgang að vefnum en telur þig þurfa þess þarftu að hafa samband við umsjónaraðila hjá þínu fyrirtæki.
Innskráning á vefinn
Inn á motus.is skaltu veldu Innskráning og því næst Innheimta úr fellivalmyndinni.
Skráðu þig inn með aðgangs- og lykilorðinu sem þú ættir að hafa fengið sent
Ef þú vilt framvegis notfæra þér rafræna innskráningu þá skaltu velja Stillingar og skrá inn kennitöluna þína. Þá getur þú framvegis notað rafræn skilríki til að innskrá þig.
Forsíðan og helstu aðgerðir á vefnum
(1) Greiðendur – Hægt er að slá inn kennitölu eða nafn greiðenda, eða málanúmer til að sjá yfirlit yfir innheimtumál viðkomandi og samskipti
(4) Aðgerðir – Á öllum síðum má nálgast aðgerðir til að prenta út eða taka út gegn í Excel skrá. Ef Afmörkun síðu er valin birtast ýmsir möguleikar til að takmarka sýn til dæmis við ákveðið tímabil eða stöðu mála.
(2) Kröfuhafi – Ef þú ert notandi sem átt mörg kröfuhafanúmer getur verið þægilegt að afmarka vefinn við eitt eða fleiri kröfuhafanúmer.
(5) Samantekt– Efst má sjá fjölda mála sem hafa verið mótttekin þann í dag, mál í innheimtu og kröfur sem hafa farið í faglegt mat. Hægt er að smella á hvern flokk til að fá lista yfir málin.
(3) Notandi – Hér má nálgast stillingar sem eiga við aðganginn þinn, eins og að skrá netfangið þitt uppá að fá tilkynningar. Ef þú ert með aðgang að fleiri en einu fyrirtæki sem er í innheimtuþjónustu hjá Motus, þá getur þú undir tengdum notendum valið út frá hvaða aðgangi þú vilt auðkenna þig.
(6) Yfirlit – Sýnir lista yfir mál flokkað eftir því hvar þau eru stödd í innheimtuferlinu, það er frum- milli, eða löginnheimtu. Hægt er að sprengja út hvern flokk til að fá nánari sundirliðun og skoða hvert mál fyrir sig.
Þessi vefsíða notar vafrakökur
Á þessari síðu eru notaðar vafrakökur í þeim tilgangi að bæta upplifun notenda og halda utan um og mæla frammistðu vefsins og umferð um hann, svo sem tölfræðilegar upplýsingar um fjölda notenda og hegðun þeirra á honum.
Flestir vafrar heimila notkun á vefkökum sjálfkrafa, en notendur geta sjálfir afvirkjað þann möguleika.