Kröfustýring Archives – Motus https://motus.is/tag/krofustyring/ Við komum fjármagni á hreyfingu Wed, 31 May 2023 17:16:26 +0000 en-US hourly 1 https://wordpress.org/?v=6.9 https://motus.is/wp-content/uploads/2022/07/cropped-favicon-green-1-32x32.gif Kröfustýring Archives – Motus https://motus.is/tag/krofustyring/ 32 32 Greiðsluhraði minnkar í fyrsta sinn frá 2012 https://motus.is/greidsluhradi-minnkar-i-fyrsta-sinn-fra-2012/?utm_source=rss&utm_medium=rss&utm_campaign=greidsluhradi-minnkar-i-fyrsta-sinn-fra-2012 https://motus.is/greidsluhradi-minnkar-i-fyrsta-sinn-fra-2012/#respond Fri, 17 Mar 2023 10:35:32 +0000 https://motus.is/?p=3759 Frá árinu 2012 höfum við séð greiðsluhraða aukast frá ári til árs. Þeirri þróun lauk árið 2022, þegar greiðsluhraði lækkaði í fyrsta sinn.

The post Greiðsluhraði minnkar í fyrsta sinn frá 2012 appeared first on Motus.

]]>
Greiðsluhraði er mælikvarði sem við hjá Motus notum til að greina þróun innheimtu og veita viðskiptavinum góðar upplýsingar um heildarárangur kröfustýringar. Mælikvarðinn byggir á öllum stofnuðum kröfum hvers viðskiptavinar og er greiðsluhraði mældur út frá því hversu hratt kröfur greiðast, þ.e. hversu hátt hlutfall stofnaðra krafna er greitt á tilteknum tímapunktum.

Eftir því sem hlutfallið hækkar eykst greiðsluhraði og er því jákvætt að greiðsluhraði sé mikill. Fram að þessu höfum við gefið árlega út skýrslu um greiðsluhraða sveitarfélaga tengt fjármálaráðstefnu sveitarfélaganna á haustin. Í fyrsta sinn höfum við nú tekið saman tölur yfir greiðsluhraða viðskiptavina Motus óháð atvinnugrein og birtum nú greiningu á þróun greiðsluhraða árið 2022. Við ætlum okkur jafnframt að birta þróun greiðsluhraða reglulega hér á vefnum í kjölfarið.

Sækja skýrsluna (pdf)

Greiðsluhraði 2022

Frá því við hófum mælingar á greiðsluhraða hefur greiðsluhegðun Íslendinga tekið miklum breytingum til hins betra. Þessi bæting á við hvort sem greiðandinn er fyrirtæki eða heimili. Árið 2022 sker sig þó úr, því í fyrsta sinn frá því að mælingar hófust 2012 hægir á greiðsluhraðanum.

  • Greiðsluhraði mældist 87,7% og lækkaði um 0,13% á milli áranna 2021 og 2022. Er það í fyrsta skipti síðan mælingar hófust árið 2012 sem það gerist, en það ár mældist greiðsluhraði 72,3%.
  • Til að setja þessar tölur í samhengi þýðir þetta að árið 2012 hafi kröfur að fjárhæð 218 milljarð króna farið í vanskil en árið 2021 voru vanskilin komin niður í 96 milljarða.
  • Minnkun greiðsluhraða um 0,1% árið 2022 jafngildir því að milljarður til viðbótar hafi farið í vanskil á árinu en ella hefði orðið eða 97 milljarðar.
  • Greiðsluhraði hafði hækkað stöðugt frá því að mælingar hófust. Hann jókst sérstaklega mikið í Covid eða um 3,2% á milli áranna 2019 og 2020.

 

Vanskil enn lítil í sögulegu samhengi

Vanskil eru enn í afar lítil í sögulegu samhengi en í fyrsta skipti síðan við hófum þessar mælingar árið 2012 minnkuðu vanskil ekki á milli ára heldur standa í stað eða aukast örlítið. Enn er þó erfitt að segja til um hvert nýtt jafnvægi verður; hvort þetta sé vísir að áframhaldandi aukningu vanskila eða nýtt jafnvægi.

Greiðsluhraði á eindaga

Vanskil á eindaga lækkuðu um 121 milljarð eða 55,6% á árunum 2012-2022

Greiðsluhraði jókst til muna í Covid og 2020 jókst hann til að mynda um ein 3,2% milli ára. Það samsvarar því að útistandandi kröfur eftir eindaga hafi lækkað um 32 milljarða á milli ára. Þróun greiðsluhraða síðan 2012 jafngildir því að árið 2012 hafi 218 milljarðar króna farið í vanskil en árið 2022 voru vanskilin komin niður í 97 milljarða.

Upphæðir ógreiddra krafna sem fara fram yfir eindaga. Breyting milli ára.

Mesta aukning vanskila í matvælaiðnaði

Sem fyrr eru einstaklingar skilvísari en fyrirtæki. Þá er greiðsluhraði innan geira sem gefa frekar út kröfur á fyrirtæki hægari en annarra. Athygli vekur að matvælaiðnaður (matvælaframleiðsla, heildsala og dreifing) er sá geiri sem einna helst er að glíma við aukin vanskil og þar verður mesta breytingin milli ára eða 2,5% minni greiðsluhraði á eindaga.

Greiðsluhraði atvinnugreina

Hvað er greiðsluhraði?

Greiðsluhraði er mælikvarði sem við notum til að greina þróun innheimtu og veita viðskiptavinum góðar upplýsingar um heildarárangur kröfustýringar. Mælikvarðinn byggir á öllum stofnuðum kröfum hvers viðskiptavinar og er greiðsluhraði mældur út frá því hversu hratt kröfur greiðast, þ.e. hversu hátt hlutfall stofnaðra krafna er greitt á tilteknum tímapunktum. Eftir því sem hlutfallið hækkar eykst greiðsluhraði og er því jákvætt að greiðsluhraði sé mikill. Greiðsluhraði er byggður á gögnum u.þ.b. 410 viðskiptavina Motus, sem sótt voru í kröfupott í febrúar 2023. Árið 2022 stofnuðu þeir rúmlega 13,3 milljónir krafna að upphæð um 788 milljarð.

Sækja skýrsluna (pdf)

—–

Við komum fjármagni á hreyfingu

Motus er leiðandi fyrirtæki á sviði kröfustýringar og innheimtu fyrir fyrirtæki, sveitarfélög, lífeyrissjóði og opinbera aðila. Hjá Motus starfar fjölbreyttur hópur sérfræðinga um land allt sem veitir ráðgjöf um skilvirka kröfustýringu. Allir viðskiptavinir Motus hafa aðgang að greiðsluhraða fyrir sínar kröfur á þjónustuvef Motus og sérfræðingar okkar geta verið ykkur innan handar þegar kemur að ráðgjöf varðandi aðgerðir sem eru líklegar til að bæta kröfustýringu og innheimtuárangur. Sérfræðingar okkar taka vel á móti þér.

The post Greiðsluhraði minnkar í fyrsta sinn frá 2012 appeared first on Motus.

]]>
https://motus.is/greidsluhradi-minnkar-i-fyrsta-sinn-fra-2012/feed/ 0
Faktoría verður Motus kröfufjármögnun https://motus.is/faktoria-verdur-motus-krofufjarmognun/?utm_source=rss&utm_medium=rss&utm_campaign=faktoria-verdur-motus-krofufjarmognun https://motus.is/faktoria-verdur-motus-krofufjarmognun/#respond Wed, 13 Jul 2022 11:41:09 +0000 https://motus.is/?p=2229 Faktoría kröfufjármögnun og Motus hafa nú verið sameinuð. Framvegis verður Faktoría því rekin undir nafni Motus, en Faktoría hefur verið systurfélag Motus frá árinu 2019. Sameiningin er liður í yfirstandandi þróun á þjónustuframboði Motus sem nær nú yfir allt sem snýr að kröfustýringu.

The post Faktoría verður Motus kröfufjármögnun appeared first on Motus.

]]>

Ákveðið hefur verið að sameina þjónustu Faktoríu kröfufjármögnunar og Motus. Framvegis verður Faktoría því rekin undir nafni Motus, en Faktoría hefur verið systurfélag Motus frá árinu 2019. Sameiningin er liður í yfirstandandi þróun á þjónustuframboði Motus sem nær nú yfir allt sem snýr að kröfustýringu. Áhersla félagsins er sem fyrr á skjótt og öruggt fjárflæði viðskiptavina hvort sem það snýr að innheimtu, fjármögnun krafna eða kaupum á eldri kröfum.

Þessi breyting mun ekki hafa nein áhrif á þjónustu við viðskiptavini Faktoríu, en sú kröfufjármögnun sem Faktoría bauð upp á verður framvegis hluti af vöruframboði Motus. Viðskiptavinum stendur því áfram til boða sama skjóta og trausta fjármögnunarþjónustan sem þeir hafa vanist.

 

Brynja Baldursdóttir, forstjóri Motus:

„Við erum stolt af þeirri vinnu sem unnin hefur verið innan Faktoríu til að auka greiðsluöryggi fyrirtækja og tryggja þar með óslitinn rekstur þeirra. Við munum halda áfram að veita þá þjónustu, en nú undir merkjum Motus. Markmið okkar er að Motus komi  fjármagni á hreyfingu á hagkvæman, nútímalegan og aðgengilegan hátt og stuðli þannig að hagsæld í samfélaginu. Þessar breytingar sem við kynnum nú hafa engin áhrif á þjónustu til viðskiptavina til skemmri tíma, en með því að samþætta þjónustuframboðið okkur munum við geta aukið enn við þjónustuframboð Motus á sviði kröfustýringar og fjárflæðilausna. Við hlökkum til að kynna þær nýjungar fyrir viðskiptavinum okkar á næstu mánuðum.“

The post Faktoría verður Motus kröfufjármögnun appeared first on Motus.

]]>
https://motus.is/faktoria-verdur-motus-krofufjarmognun/feed/ 0
Viðtal við Brynju Baldursdóttur https://motus.is/2261-2/?utm_source=rss&utm_medium=rss&utm_campaign=2261-2 https://motus.is/2261-2/#respond Sat, 02 Jul 2022 10:30:34 +0000 https://motus.is/?p=2261 Þann 13. júlí síðast liðinn birtist viðtal í Morgunblaðinu við Brynju Baldursdóttir forstjóra Motus.

The post Viðtal við Brynju Baldursdóttur appeared first on Motus.

]]>
Þann 13. júlí 2022 birtist viðtal í Morgunblaðinu við Brynju Baldursdóttir forstjóra Motus.

Í viðtalinu fer Brynja yfir þróun vanskila. sem hafa aldrei verið minni en einmitt í faraldrinum. Jafnaframt er stiklað á stóru um framtíðarsýn Motus eftir sameiningu þjónustuframboðs Motus og Faktoríu kröfufjármögnunar. Þannig er áhersla félagsins sem fyrr skjótt og öruggt flæði fjármagns viðskiptavina á öllum stigum kröfunnar og nær nú þjónustuframboð Motus yfir kröfustýringu í heild sinni; kröfufjármögnun, innheimtu og kröfukaup. Að lokum segir Brynja mikil tækifæri felast í nýtingu gagna, tækni og aukinni sjálfvirkni, bæði fyrir greiðendur og kröfuhafa.

Viðtalið í heild sinni má lesa á mbl.is.

 

Mynd af grein úr Morgunblaðinu

The post Viðtal við Brynju Baldursdóttur appeared first on Motus.

]]>
https://motus.is/2261-2/feed/ 0