Hagkvæmasta kröfustofnunin

Viðskiptavinum Motus býðst að stofna kröfur á þægilegan og hagkvæman hátt. Kröfurnar eru tengdar við kröfupott RB og birtast greiðendum í netbanka og bókhaldskerfi.

Greitt er eitt gjald 99 kr. fyrir hverja stofnaða kröfu og er þá allt innifalið, s.s. greiðslugjald, breytingar eða niðurfellingar.

Betri kjör í krafti Motus


Kröfustofnun Motus er ódýrari en að tengjast beint í gegnum bankann. Á hverju ári stofna viðskiptavinir Motus um 13 milljónir krafna og það er í krafti þess fjölda að við getum boðið lægri verð – eitt gjald og allt innifalið.

Auðvelt og einfalt


Ferlið er einkar auðvelt og þægilegt. Þú einfaldlega uppfærir stillingar í bókhaldskerfi félagsins og getur eftir það stofnað kröfur beint úr því auk þess að hafa góða yfirsýn yfir þær á þjónustuvef okkar.

Allt í rauntíma


Þegar krafa er stofnuð í gegnum bókhaldskerfi þá birtist hún í heimabanka greiðanda samstundis. Sömuleiðis færðu að vita í rauntíma þegar krafan er greidd.

Þægileg yfirsýn á þjónustuvef

Þeir sem tengjast kröfustofnun Motus með vefþjónustu geta stofnað kröfur og fylgst með stöðu greiðslna úr eigin bókhaldskerfi í rauntíma. Sömuleiðis er hægt að skoða yfirlit yfir allar kröfur á þjónustuvef Motus með öflugri leit, breyta þeim eða fella niður.

 

Hafa samband

Segðu okkur aðeins frá fyrirtækinu þínu og við höfum samband um hæl.