Ef þú hefur fengið bréf frá okkur vegna ógreidds reiknings hvetjum við þig til að kanna á Mínum síðum hvaða möguleikar standa þér til boða til að greiða skuldina og þar með forðast frekari vanskil. Á Mínum síðum sérðu yfirlit yfir þín mál sem eru í innheimtu og getur sent okkur fyrirspurn á öruggan hátt.
Motus býður greiðendum að fá innheimtubréf send í tölvuósti, í stað bréfpósts. Slíkt flýtir fyrir að áminning berist og getur orðið til þess að hægt er að ganga fyrr frá skuldinni og þannig koma í veg fyrir frekari kostnað og óþægindi.
Þjónustufulltrúar Motus geta veitt ráðgjöf og aðstoðað við gerð greiðslusamkomulags.