Motus og Lögheimtan eru leiðandi fyrirtæki á sviði kröfuþjónustu og innheimtu. Hjá okkur starfar fjölbreyttur hópur fólks sem leggur sig fram um að starfa af heilindum og fagmennsku. Jafnrétti, jákvæð samskipti og gagnkvæm virðing eru grundvöllur starfseminnar. Við gætum fyllsta trúnaðar við vinnslu starfsumsókna og persónuupplýsinga.
Viðskiptastjóri
Við leitum að lausnamiðuðum og árangursdrifnum einstaklingi með reynslu af sölu- og viðskiptastýringu og áhuga á öllu sem snýr að fjármálaþjónustu.
Almenn umsókn
Hægt er að leggja inn almenna umsókn hjá Motus með því að fylla út grunnskráningu og sækja síðar um auglýst störf.