Að nálgast reikninga

Á viðskiptavefnum hefur þú aðgang að hreyfingaryfirliti fyrir þitt félag ásamt reikningum til dæmis vegna útlagðs kostnaðar, kröfulýsingar, árangurslauss fjárnáms og álagningu virðisaukaskatts.Þú finnur hreyfingaryfirlit í leiðarkerfi vefsins undir „Uppgjör Motus“ fyrir mál í frum- og milliinnheimtu og „Uppgjör Lögheimtan“ fyrir lögfræðimál.

Ef félagið þitt er með fleiri en eitt kröfuhafanúmer þá er hreyfingarlistanum skipt upp eftir þeim. Hægt er að afmarka listann einungis við færslur sem hafa reikning sem fylgigagn. Einnig er hægt að sækja gögnin í Excel skrá.

Meðfylgjandi myndband sýnir hvernig nálgast má hreyfingaryfirlit og reikninga á viðskiptavefnum.

 

Virðisaukaskattur af innheimtuþjónustu

Motus og Lögheimtan reikna virðisaukaskatt af innheimtuþjónustu til viðskiptavina sinna samkvæmt fyrirmælum frá Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands. Þannig er þjónusta sú sem felst í innheimtu fjárkröfu fyrir þriðja aðila virðisaukaskattsskyld og viðskiptasamband innheimtufyrirtækis er við kröfuhafa en ekki greiðanda. Krafa innheimtufyrirtækis til þóknunar ásamt virðisaukaskatti er því á hendur kröfuhafa.

Við vanskil af hálfu greiðanda á kröfuhafi rétt á að fá bætur úr hendi greiðanda vegna þess kostnaðar sem á hann fellur vegna innheimtu kröfunnar. Það er sá kostnaður sem greiðandi verður krafinn um vegna frum-og milliinnheimtu samkvæmt. reglugerð nr. 37/2009, um hámarksfjárhæð innheimtukostnaðar. Í þessu felst að hafi krafan stofnast í virðisaukaskattsskyldri starfsemi kröfuhafa myndar virðisaukaskattur af innheimtuþóknun ekki kostnað hjá kröfuhafa þar sem hann nýtur innskattsréttar. Í framkvæmd ber því greiðanda aðeins að greiða virðisaukaskatt á innheimtuþóknun hafi krafan ekki stofnast í virðisaukaskattsskyldri starfsemi kröfuhafa.