Motus býður viðskiptavinum sínum að stofna kröfur sem eru tengdar við kröfupott RB og birtast greiðendum í netbanka og bókhaldskerfi. Ef kröfur greiðast ekki á eindaga berast þær til Motus sjálfkrafa frá viðskiptabanka ykkar. Þá tekur við dæmigert innheimtuferli eins og það sem sýnt er á myndinni þar sem áminning er send 5 dögum eftir eindaga í ykkar nafni. Ef það ber ekki árangur er málinu fylgt eftir með allt að þremur innheimtubréfum frá Motus. Sé krafan áfram ógreidd fer fram mat á því hvort hún skuli fara í löginnheimtu eða fylgt eftir með kröfuvakt. Áminningar til greiðanda eru sendar í tölvupósti hafi viðkomandi samþykkt það.
Mánaðargjald fyrir innheimtuþjónustu er 2.990 kr.

Í boði er að senda innheimtubréf með stafrænum hætti sem hefur mikla kosti í formi hraðari og áhrifaríkari samskipta. Sömuleiðis notum við sms og rafræn skjöl í heimabanka, allt eftir því hvað á við hverju sinni.
→ Meira um stafræna innheimtu.
Við bjóðum samþættingu við öll helstu bókhaldskerfi. Þannig getur þú fylgst með stöðu mála og framkvæmt allar helstu aðgerðir vegna innheimtunnar beint úr bókhaldskerfi þíns fyrirtækis.
→ Meira um samþættingar við bókhaldskerfi
Þú hefur góða sýn yfir stöðu þín félags á þjónustuvefnum þar sem hægt er að framkvæma helstu aðgerðir, til dæmis að fresta máli eða afturkalla. Einnig er hægt að nálgast gögn vegna uppgjör mála og ítarlegar greiningar.
Góðir innheimtuhættir eru leiðarljós í samskiptum okkar við viðskiptavini þína. Greiðendur geta nálgast upplýsingar um sín mál, óskað eftir fresti eða dreift greiðslum á Mínum síðum eða leitað til þjónustu okkar.
Segðu okkur aðeins frá fyrirtækinu þínu og við höfum samband um hæl.
Motus annast ekki innheimtu mála erlendis en bendir viðskiptavinum sínum á að hafa samband við TCM.