Skilvirk innheimta og góð yfirsýn mála

Við bjóðum heildstæða þjónustu sem byggir á reynslu og þekkingu sérfræðinga okkar sem og öflugum stafrænum lausnum. Þú getur treyst okkur til að stuðla að betra flæði fjármagns svo þú getir einbeitt þér að því að efla reksturinn.

Kostir þess að vera með innheimtuna hjá Motus

Stafræn innheimta

Í boði er að senda innheimtubréf með stafrænum hætti sem hefur mikla kosti í formi hraðari og áhrifaríkari samskipta, auk þess að vera umhverfisvænari kostur. Meira um stafræna innheimtu

Samþætting við bókhaldskerfi

Við bjóðum samþættingu við öll helstu bókhaldskerfi. Þannig má senda kröfuskrár og lesa greiðsluskrár beint í bókhaldskerfi þíns fyrirtækis og framkvæma helstu aðgerðir.

Góð yfirsýn og þú stjórnar ferðinni

Góð yfirsýn á viðskiptavefnum og hægt að framkvæma helstu aðgerðir eins og fresta eða afturkalla mál. Einnig hægt að nálgastu gögn vegna uppgjörs mála.

Öflug greiðandaþjónusta

Góðir innheimtuhættir eru leiðarljós í samskiptum okkar við viðskiptavini þína. Greiðendur geta nálgast upplýsingar um sín mál, óskað eftir fresti eða dreift greiðslum á Mínum síðum eða leitað til þjónustvers okkar.

Svona virkar dæmigert innheimtuferli

Mynd af hefðbundnu innheimtuferli

Frum- og milliinnheimta

Fruminnheimta Motus felur í sér útsendingu innheimtuviðvörunar í nafni kröfuhafa, í samræmi við innheimtulög. Ef reikningur hefur ekki greiðst á eindaga tekur við milliinnheimta. Oftast tekur Motus við kröfum úr kröfupotti bankanna, en einnig er hægt að handskrá þær.

Í milliinnheimtu er greiðandi áminntur með bréfum og hringingum, og hvattur til að hafa samband hafi viðkomandi athugasemdir við kröfuna eða vill semja.

Á meðfylgjandi mynd er sýnt hvernig innheimtuviðvörun er send greiðanda fimm dögum eftir eindaga í nafni kröfuhafa. Ef það ber ekki árangur er málinu fylgt eftir með allt að þremur áminningum og símhringingu frá Motus.

Löginnheimta

Mál sem farið hafa í gegnum frum- og milliinnheimtu hjá Motus án árangurs er alla jafna vísað áfram í löginnheimtu. Með löginnheimtu er átt við aðgerðir þar sem réttarfarslagum úrræðum er beitt, til að mynda málshöfðun fyrir dómi og fullnustugerðum hjá sýslumanni. Löginnheimta er framkvæmd af lögmönnum og um hana gilda lögmannalög nr. 77/1998. Samstarfsaðili Motus er varðar mál sem fara í löginnheimtu er Lögheimtan. Hjá Lögheimtunni starfa reyndir lögmenn sem tryggja faglega meðferð innheimtumála og er þjónustan þannig hluti af þeirri heildarlausn sem Motus býður viðskiptavinum sínum í kröfuþjónustu.

Kröfuvakt

Í kröfuvakt Motus vinnum við á markvissan hátt að því að innheimta kröfur, sér í lagi lágar upphæðir, sem hafa farið árangurslaust í gegnum milliinnheimtu eða löginnheimtu og væru annars afskrifaðar. Þannig er fylgst með breytingum á greiðsluhegðun aðila sem eru með ógreidda reikninga með því að afla vanskilaupplýsinga úr skrám Creditinfo, en slíkt getur haft áhrif á lánshæfismat og því hagur viðkomandi að ganga frá sínum málum.

Mál flytjast sjálfkrafa í kröfuvakt og er einungis greidd þóknun ef málið innheimtist en ekki fyrir vöktunina. Auk þess að vakta kröfurnar sjáum við um alla umsýslu tengda þeim, eins og að senda ítrekanir, gera greiðslusamkomulag og meta andmæli. Viðskiptavinir Motus geta fylgst með stöðu mála í kröfuvaktinni á viðskiptavefnum.

Millilandainnheimta

Motus annast ekki innheimtu mála erlendis en bendir viðskiptavinum sínum á að hafa samband við TCM.

Innheimtan er í traustum farvegi hjá Motus

„Frábær þjónusta er það sem einkennir Motus einna helst í mínum huga. Við þurfum lítið að gera eftir að við höfum keyrt reikninga okkar megin. Þetta gengur algjörlega eins og smurð vél. Þjónustan er persónuleg og sniðin að rekstri fyrirtækisins. Starfsfólkið spilar þarna stóran part og mikil þekking býr þar að baki.“

Anna Lára Sigurðardóttir, forstöðumaður fjármála- og rekstrarsviðs Creditinfo

Samþætting við bókhaldskerfi

Motus býður upp á tengingar við öll helstu bókhaldskerfi. Þannig má senda kröfuskrár og lesa greiðsluskrár beint í bókhaldskerfi þíns fyrirtækis og framkvæma helstu aðgerðir eins og fresta innheimtuaðgerðum, tilkynna um innborgun eða eiga örugg samskipti.