Blogg

Íslykill hættir 1. september 2024

Í ljósi þess að Stafrænt Ísland hættir notkun Íslykils frá og með 1. september n.k. verður innskráning á Mínar síður Motus ekki lengur möguleg með Íslykli.

Innskráning á mínar síður verður því eingöngu möguleg með rafrænum skilríkjum eftirleiðis. Aðgangur að mínum síðum fyrir hönd fyrirtækis verður opinn fyrir prókúruhafa og framkvæmdastjórn skv. gildandi skráningu í fyrirtækjaskrá Skattsins. Þá skráir einstaklingur sig inn með sínum persónulegu rafrænu skilríkjum og skiptir yfir á fyrirtæki. Ef innskráning fyrir hönd fyrirtækis virkar ekki bendum við á að uppfæra gæti þurft gildandi skráningu fyrirtækisins í fyrirtækjaskrá hjá Skattinum.