Blogg

Við leitum að vörueiganda í teymið

Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi í hlutverk vörueiganda sem brennur fyrir vöruþróun á stafrænum lausnum. Í þessu lykilhlutverki berð þú ábyrgð á að skilgreina virkni og stýra þróun á vörum sem viðskiptavinir okkar treysta á. 

Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi í hlutverk vörueiganda sem brennur fyrir vöruþróun á stafrænum lausnum. Starfið er á sviði vöru- og verkefnastýringar.

Í þessu lykilhlutverki berð þú ábyrgð á að skilgreina virkni og stýra þróun á vörum sem viðskiptavinir okkar treysta á.

Motus er á spennandi vegferð sem miðar að því að finna nýjar leiðir til að styrkja gæði kröfuþjónustu, svo hún verði ómissandi þáttur í vexti og viðgangi fyrirtækja á landinu öllu. Hlutverk Motus er að koma fjármagni á hreyfingu á hagkvæman, nútímalegan og aðgengilegan hátt. Við beitum til þess nýjustu tækni og sérþekkingu og leitum stöðugt hagkvæmustu lausna í þágu viðskiptavina og samfélags.

Umsóknarfrestur er til og með 6. september 2024.

Frekari upplýsingar um starfið má lesa hér.