Vanskil enn í lágmarki

Vanskil voru í lágmarki árið 2025, hvort heldur sem litið er til  einstaklinga eða fyrirtækja. Síðustu ár hafa vanskil stöðugt farið lækkandi, en í fyrra fór ársmeðaltalið í fyrsta sinn niður fyrir 12% og mældist 11,9%.  Alvarleg vanskil hafa sömuleiðis dregist saman, en þau fóru úr rúmlega 1,5% í  1,3% í fyrra, en miðað er við 6 mánaða rúllandi meðaltal. Á árunum 2021-2025 hafa vanskil mælst lægri en nokkru sinni fyrr og verið á bilinu 12,3%-11,9% borið saman við 17,7% 2019. Alvarlegu vanskilin hafa sömuleiðis

Hugtakið vanskil hér á við um kröfur sem eru ógreiddar á eindaga og alvarleg vanskil á við um kröfur sem enn eru ógreiddar 45 dögum eftir eindaga.

Súlurit með vanskilum 2019 - 2025

 

Vanskil einstaklinga lækka enn

Við árslok 2025 var hlutfall vanskila einstaklinga lægra en nokkru sinni fyrr og mældist 10,8% samanborið við 11,5% árið áður. Alvarleg vanskil einstaklinga, þar sem vanskil hafa staðið yfir lengur en 45 daga, voru sömuleiðis lægri en áður. Í lok október 2025 voru þau einungis 1,0% miðað við 1,2% á sama tíma í fyrra og 2,13% á sama tíma árið 2019.

Vanskil fyrirtækja haldist nokkuð stöðug síðan 2021

Vanskil fyrirtækja árið 2025 voru 13,7% og stóðu nánast í stað frá árinu 2024 þegar þau mældust 13,8%. Sömu sögu er að segja af alvarlegum vanskilum fyrirtækja. Í október 2025 stóðu þau í 1,5% miðað við 1,6% á sama tíma í fyrra. Vanskil hafa staðið í stað eða dregist saman í öllum geirum. Það sama má segja um alvarleg vanskil, að undanskildum kröfum sem gefnar eru út af fyrirtækjum í ferðaþjónustu og fjarskiptum sem hækka lítillega.

 

Nýja nafnvægið að festa sig í sessi

Í haust sögðum við á þessum vettvangi að svo virtist sem vanskil einstaklinga og fyrirtækja væru að komast á nýjan jafnvægispunkt, sem væri töluvert lægri en hann var fyrir heimsfaraldurinn. Enn benda allar tölur til þess að þetta sé rétt. Erfitt er að sjá hvað veldur því að fólk og fyrirtæki standa nú betur í skilum en áður. Verðbólga er lengi búin að vera yfir markmiði Seðlabankans og vaxtastigið því hátt, en engu að síður er greiðsluhraði mun betri en hann var fyrir sex árum. Við eigum eftir að sjá hvaða áhrif nýjar verðbólgutölur hafa á greiðsluhraðann, en hvað sem veldur höldum við áfram að rýna í gögnin sem við búum yfir, enda geta sveiflur í vanskilum gefið mikilvæga innsýn inn í þróun efnahagsmála.

 


Við komum fjármagni á hreyfingu

Motus er leiðandi fyrirtæki á sviði kröfuþjónustu fyrir fyrirtæki, sveitarfélög, lífeyrissjóði og opinbera aðila. Hjá Motus starfar fjölbreyttur hópur sérfræðinga um land allt sem veitir ráðgjöf um skilvirka kröfuþjónustu. Auk þess að rýna vanskil og greiðsluhraða gerum við samanburðarskýrslur og sértækar greiningar eftir óskum. Við hvetjum þig til að hafa samband og fá ráðgjöf um aðgerðir sem líklegar eru til að bæta kröfustýringu þíns félags. Sérfræðingar okkar taka vel á móti þér.

Greining þessi hefur verið útbúin af Motus ehf. (Motus) á grundvelli opinberra upplýsinga og annarra gagna sem félagið hafði aðgang að. Mat á þeim upplýsingum og gögnum endurspeglar skoðanir starfsfólks Motus á þeim tíma sem greiningin er gerð. Motus ber ekki ábyrgð á réttmæti þeirra upplýsinga og gagna sem greiningin byggist á, innihaldi hennar, villum eða rangfærslum sem kunna að vera í greiningunni. Heimilt er að nýta sér efni þessarar greiningar en þess er óskað að heimildar sé getið.