Ákvörðun um löginnheimtu

Þegar krafa hefur farið í gegnum innheimtuferlið án þess að greiðast þarf að taka ákvörðun um hvort áframhaldandi aðgerðir í löginnheimtu séu líklegar til að skila árangri eða hvort senda eigi málið í kröfuvakt. Við mat á því hvort löginnheimta sé líkleg til árangurs er litið til fjölda þátta sem byggja m.a. á sérfræðiþekkingu Lögheimtunnar við löginnheimtu og tölfræðilíkani sem spáir fyrir um greiðslulíkur kröfunnar, enda um kostnaðarsamar og íþyngjandi aðgerðir að ræða fyrir alla málsaðila.

Forsendur þess að mælt er með löginnheimtu

Á viðskiptavef Motus finna viðskiptavinir lista yfir þau mál sem við mælum með að senda í löginnheimtu. Endanleg ákvörðun um að stiga mál áfram í löginnheimtu er alltaf kröfuhafa. Til grundvallar slíkum meðmælum notum við t.d. viðmiðunarupphæð, ákvarðanatré og tölfræðilíkan sem spáir fyrir um greiðslulíkur á næstu 13 mánuðum. Horft er til breyta eins og fjölda mála í innheimtu og alvarleika þeirra og hvort greiðandi sé með eða hafi verið með mál á vanskilaskrá. Þá er jafnframt litið til þess hvort um lögveð sé að ræða, fyrirliggjandi gjaldþrot og fjárhæðar skuldarinnar. Motus annast innheimtu fyrir um 1.500 fyrirtæki og byggir líkanið því á greinagóðum gögnum sem styðja við spágetu þess. Almennt má segja að ef líkur á greiðslu eru metnar nægilega háar og upphæðin er yfir ákveðnu marki mælum við með löginnheimtu. Að öðrum kosti getum við haldið áfram innheimtu í kröfuvakt.

Ávinningur af löginnheimtu

Löginnheimta er áhrifarík og markviss leið til að innheimta kröfur þegar fyrri innheimtuaðgerðir hafa ekki skilað tilætluðum árangri. Með því að hefja löginnheimtu færist málið í formlegt og lögvarið ferli sem tryggir réttindi kröfuhafa. Slíkar aðgerðir skapa gjarnan aukinn þrýsting og hvatningu fyrir skuldara til að ljúka greiðslu eða semja um uppgjör áður en málið þróast í kostnaðarsamara og íþyngjandi ferli.

Þegar krafa fer í löginnheimtu fer hún í ákveðin farveg sem ræðst af eðli kröfunnar. Sem dæmi, ef krafa er aðfararhæf þá er birting greiðsluáskorunar grundvöllur þess að hægt sé að óska eftir aðför hjá sýslumanni. Birting greiðsluáskorunar, ásamt fjárhæðarviðmiði er jafnframt forsenda þess að hægt sé að skrá kröfuna á vanskilaskrá Creditinfo. Ef krafa nýtur hins vegar ekki aðfararhæfis þá þarf fyrst að bera hana undir dómstóla og afla dóms eða áritunar á stefnu, áður en hægt er að leita til sýslumanns og óska eftir aðför. Birting stefnu, ásamt fjárhæðarviðmiði, er einnig skilyrði fyrir því að skrá kröfu á vanskilaskrá Creditinfo. Ef þessi úrræði leiða hvorki til greiðslu né samkomulags heldur krafan áfram í innheimtuferlinu samkvæmt viðeigandi úrræðum, sjá skýringarmynd af innheimtuferlinum.

Ákvörðun um lögfræðiinnheimtu

Á meðan beðið er eftir ákvörðun kröfuhafa um hvort senda skuli mál til lögfræðiinnheimtu eða kröfuvaktar eru innheimtuaðgerðir tímabundið stöðvaðar. Krafan ber að sjálfsögðu áfram dráttarvexti en greiðandi er ekki minntur á greiðslu á meðan. Sumar kröfur, eins og lögveðskröfur, hafa skamman fyrningartíma, húsfélagsgjöld t.d. bara ár og fasteignagjöld tvö ár. því sé mjög mikilvægt að bregðast hratt og örugglega við. Það er því mikilvægt að taka ákvörðun fyrr en síðar svo hægt sé að halda áfram með innheimtuaðgerðir.

Þegar ákvörðun um lögfræðiinnheimtu hefur verið tekin þurfa eftirfarandi gögn að liggja fyrir:

  • Frumrit eða ljósrit reikninga að baki kröfunni. Ef ekki kemur skýrt fram á reikningi fyrir hvað verið er að greiða, þarf að leggja fram frekari gögn sem sýna með skýrum hætti á hvaða grundvelli krafan byggir. Slík gögn geta verið t.d. verksamningur, tíma- eða vinnuskýrslur eða önnur sönnungargögn sem útskýra hvaða vinna, þjónusta eða vara liggur að baki kröfunni.
  • Staða höfuðstóls. Hafi verið greitt inn á reikningana áður en þeir voru sendir í innheimtu hjá Motus verða kvittanir fyrir þeim greiðslum að fylgja, eða hreyfingarlisti sem sýnir stöðuna frá núlli.

Hvað með kröfurnar sem við mælum ekki með að fari í löginnheimtu?

Ef við metum kröfuna svo að löginnheimta sé ekki líkleg til árangurs mælum við með að halda innheimtu áfram í kröfuvakt. Þar höldum við áfram að minna greiðandann á vanskilin mánaðarlega með stafrænum áminningum þar til krafan er fyrnd. Það er ekki lagður kostnaður á við þessar stafrænu áminningar og greiðendur hafa meiri sveigjanleika þegar þeir semja um kröfur í kröfuvakt.