Fékkstu bréf frá okkur?

Ef þú ert með spurningar um stöðu mála í innheimtu þá bendum við á mínar síður fyrir greiðendur þar sem þú getur nálgast upplýsingar um þín mál í innheimtu og séð hvaða úrræði eru í boði.

  • Allir einstaklingar 18 ára og eldri með íslenska kennitölu geta skráð sig inn á mínar síður með rafrænum skilríkjum.
  • Fyrirtæki hafa einnig aðgang að mínum síðum. Sjá nánari upplýsingar.
  • Farðu inn á mínar síður og skráðu netfangið þitt og síma. Þannig getum við átt í öruggum samskiptum við þig hvort sem er í gegnum netspjall, þú sendir okkur fyrirspurn eða í síma.

Stutt myndbönd um mínar síður

           

Hvernig get ég greitt mál eða borgað inn á það?

Þú getur gengið frá greiðslu máls að fullu eða hluta í sjálfsafgreiðslu inni á Mínum síðum. Ef greiðsluseðill er enn virkur í heimabanka getur þú einnig greitt málið þar.

1. Skráðu þig með rafrænum skilríkjum inn á Mínar síður.
2. Á forsíðunni sérðu lista yfir útistandandi mál. Hakaðu við málið sem á að greiða og veldu greiða hnappinn
3. Á greiðslusíðunni velur þú hvort á að greiða málið að fullu eða hluta
3. Hægt er að greiða með debet- eða kreditkorti.




Svona sérðu númerið á greiðslukortinu þínu í bankaappi.


Ef þú ert ekki með greiðslukortið þitt við hendina þá ættirðu að geta séð númer þess inni í bankaappinu þínu. Veldu greiðslukortið þitt og þá ætti að birtast sambærileg mynd og hér er meðfylgjandi. Ýttu á augað og þá ætti kortanúmerið að birtast.

Skjámynd af greiðslukorti
           

Get ég samið um greiðslu á kröfum í innheimtu?

Já þú getur samið um að skipta greiðslum fyrir flest mál í innheimtu inni á Mínum síðum. Alla jafna er hægt að dreifa greiðslum til 6 mánaða eða 12 fyrir mál í kröfuvakt.

  • Inn á Mínum síðum velur þú mál sem gera á samkomulag um og því næst Semja hnappinn
  • Þú velur svo fjölda afborgana og hvort greiða á með korti (debet eða kredit) eða fá greiðsluseðil í heimabanka.

Í flestum tilvikum virkjast greiðslusamkomulag um leið og það er útbúið á Mínum síðum. Í einhverjum tilvikum þarf að yfirfara þau, til dæmis ef mál er komið í löginnheimtu, og látum við þá vita innan tveggja virkra daga hvort samkomulagið hafi verið samþykkt.

Hér fyrir neðan má sjá stutt myndband sem sýnir hvernig hægt er að ganga frá greiðslusamkomulagi á Mínum síðum.