Blogg

Vanskil eru að aukast – en ekki mikið enn.

Það dylst engum að nú er þrengra um í efnahagslífinu en á sama tíma í fyrra. Verðbólga hefur aukist og vextir sömuleiðis og fyrirtæki jafnt sem heimili hafa þurft að þrengja mittisólarnar. Það þýðir að forgangsröðun í útgjöldum breytist, fólk þarf að taka ákvarðanir um hvaða liðir í bókhaldinu halda sér og hvar hægt er að skera niður. Upplýsingar um greiðsluhraða og hlutfall krafna í alvarlegum vanskilum geta gefið mikilvægar vísbendingar um lausafjárstöðu íslenskra fyrirtækja og heimila og það sem meira er um vert þá verða þessar tölur nánast til í rauntíma og geta því haft ákveðið forspárgildi um framtíðina.

Leifur Grétarsson forstöðumaður viðskiptastýringar skrifaði nokkur orð um vanskil og vísbendingar um minnkandi greiðsluhraða í aðsendri grein á visir.is.

Það dylst engum að nú er þrengra um í efnahagslífinu en á sama tíma í fyrra. Verðbólga hefur aukist og vextir sömuleiðis og fyrirtæki jafnt sem heimili hafa þurft að þrengja mittisólarnar. Það þýðir að forgangsröðun í útgjöldum breytist, fólk þarf að taka ákvarðanir um hvaða liðir í bókhaldinu halda sér og hvar hægt er að skera niður. 

Við hjá Motus höfum um nokkurra ára skeið haldið utan um upplýsingar um það sem við köllum greiðsluhraða hjá heimilum og fyrirtækjum, en með því er átt við það hve hátt hlutfall krafna eru greiddar á eindaga.  

Ólíkt því sem margir bjuggust við jókst greiðsluhraði umtalsvert í Covid faraldrinum og náði hæðum sem við höfðum ekki séð áður. Fólk og fyrirtæki voru með öðrum orðum að greiða fleiri kröfur á réttum tíma. Þessi aukni greiðsluhraði hefur haldist að mestu fram á þetta ár, en vísbendingar eru um að hann geti verið að gefa eftir. Greiðsluhraði hefur minnkað um 0,1% hjá heimilum og 0,2% hjá fyrirtækjum á þessu ári. Þetta er ekki mikil breyting í stóra samhenginu, en hún er markverð þegar við höfum í huga að þetta er í fyrsta sinn um stórt árabil sem greiðsluhraði minnkar. 

Það er einnig áhugavert að skoða tölur um alvarleg vanskil, þ.e. hlutfall krafna sem enn eru ógreiddar 45 dögum eftir eindaga. Árið 2019 fóru að meðaltali 2,5% af öllum kröfum viðskiptavina Motus í alvarleg vanskil, en hlutfallið er núna 1,4%. Á þessum tíma hefur kröfum í alvarlegum vanskilum fækkað um 47% hjá heimilum og 34% hjá fyrirtækjum. 

Við tókum hins vegar eftir því í vor að alvarlegum vanskilum fyrirtækja fjölgaði í fyrsta sinn frá október 2020. Þetta er ekki mikil aukning enn sem stendur, en það er mikilvægt að fylgjast með þessari þróun. 

Upplýsingar um greiðsluhraða og hlutfall krafna í alvarlegum vanskilum geta gefið mikilvægar vísbendingar um lausafjárstöðu íslenskra fyrirtækja og heimila og það sem meira er um vert þá verða þessar tölur nánast til í rauntíma og geta því haft ákveðið forspárgildi um framtíðina. Það er okkar von að þær geti gagnast bæði opinberum aðilum og einkageiranum í þeirra áætlanavinnu og geti jafnframt verið ákveðinn viðvörunarbjalla í samfélaginu, því ef greiðsluhraði minnkar mjög hratt, þá er það til merkis um að eitthvað sé að gerast sem bregðast þurfi við. 

 

 

Birt á Vísi 8. nóvember 2023

Meira um greiðsluhraða og vanskil í útgefinni skýrslu okkar frá 2. október 2023

Sækja skýrsluna: Greiðsluhraði – lykiltölur september 2023 (PDF)