Þriðjudaginn 25. apríl næst komandi býður Motus til morgunfundar fyrir viðskiptavini sína þar sem boðið verður upp á stutta fræðslu og samtal með kaffi og léttum morgunmat.
Á fundinum förum við yfir greiningu á greiðsluhraða fyrir árið 2022 og skoðum hvernig árið 2023 byrjar með glænýjum tölum fyrir janúar – mars.
- Eru vanskil að aukast eða minnka?
- Hvaða vísbendingar sjáum við í okkar gögnum fyrir næstu misseri?
- Hvaða atvinnuflokkar finna fyrst fyrir áhrifum?
Fundurinn fer fram þriðjudaginn 25. apríl kl. 9 á skrifstofu okkar í Katrínartúni 4 á 7. hæð.
Aðgangur er ókeypis en við biðjum þig vinsamlega um að skrá þig</>.